Fréttir og viðburðir
Kl. 10:45. Herjólfur ferjar bæði rútu og hópinn til Eyja. Þegar þangað er komið er ekið inn í Herjólfsdal, áður en borðaður er hádegisverður á Tanganum. Eftir hádegi liggur leiðin m.a. út á Stórhöfða, um ,,nýja hraunið“ og Skansinn, áður en við heimsækjum Eldheima og fræðumst um eldgosið og afleiðingar þess í janúar 1973.
Kl. 17:30. þríréttaður kvöldverður borðaður á veitingastaðnum Slippurinn. Þaðan fer hópurinn aftur um borð í Herjólf. Kl. 19:30. Herjólfur leggur af stað frá Eyjum. Áætlað að koma til Reykjavíkur ekki seinna en kl. 22:00.
Verð: kr. 21.000.
Innifalið er: rúta, gjald í ferju, hádegisverður, aðgangur að safni, þriggja rétta kvöldverður.
Leiðsögumaður: Kári Jónasson
Engin ummæli enn