Fréttir og viðburðir

Ferð um Fjallabak nyrðra – Landmannalaugar 15. ágúst.

Ferð um Fjallabak nyrðra – Landmannalaugar 15. ágúst.

01.08.2023 ferdir lidid 2023

Kl. 08:30. Brottför. Lagt af stað frá bílastæði við Kennaraháskóla Ísland við Stakkahlíð.  Ekið sem leið liggur austur fyrir fjall, áleiðis upp Skeið og inni í Þjórsárdal, þar sem gerður verður stans við Þjóðveldisbæinn í Þjórsárdal. 

Þaðan verður ekið rakleiðis í Landmannalaugar, þar sem gestir taka upp nesti sitt og skoða sig um og mögulega skella sér í bað í Laugunum. Þar er hægt að kaupa mat. 

Þá verður haldið um Jökuldali og Eldgjá í Hólaskjól, þar sem gerður verður stans. Haldið verður áfram niður Skaftártungur og um Vík í Mýrdal. Þriggja rétta kvöldverður verður svo snæddur á Hóteli Dyrhóley í Mýrdal, áður en haldið er til Reykjavíkur.

Áætlaður komutími er kl.22:00.Þetta er nokkuð löng ferð og ekið yfir hálendisvegi, ár og læki.  

Verð: 13.000 kr. Innifalið er: rúta, leiðsögn, gjald á áfangastöðum og þriggja rétta kvöldmáltíð.  

Leiðsögumaður: Kári Jónasson  

Engin ummæli enn
Leit