Fréttir og viðburðir
Ferðin er tveggja daga ferð um norðanverða Vestfirði, svæði frá Arnarfirði norður í Jökulfirði verður viðfangsefni ferðarinnar. Ferðast verður með flugi, á sjó og með rútu. Heimsóttir verða áhugaverðir staðir m.t.t. náttúru, sögu og mannlífs. Fjöldi þátttakenda miðast við 25 manns. Tilkynna þarf þátttöku fyrir 1. apríl á heimasíðu félagsins, fke.is. Verð fyrir tveggja manna herbergi er kr. 105.000. Fyrir eins manns herbergi kr. 110.000. Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur Dan Ólafsson í síma 8418333 Innifalið er: flug til og frá Ísafirði, hótelgisting, þriggja rétta kvöldverður, tveir morgun- og hádegisverðir, kaffi, sigling í Jökulfirði, rúta, aðgangur að útsýni frá Bolafjalli og fararstjórn.
Engin ummæli enn