Fréttir og viðburðir
Lagt var af stað frá Kennaraháskólanum/mennta-vísindasviði við Stakkahlíð kl.9:30. Ekið að Hellisheiðar-virkjun þar sem við fengum leiðsögn um jarðfræði, raforku og hvernig virkjunin virkar. Þá var ekið í Hveragerði þar sem Njörður Sigurðsson leiðsögumaður tók á móti okkur og gekk með okkur um skáldagötur, sagði frá skáldum sem þar hafa búið og/eða búa þar núna. Við fengum síðan smurbrauð á Matkránni. Eftir gott matarstopp fórum við í Listasafn Árnesinga og fengum leiðsögn um safnið. Að því loknu ókum við sem leið lá aftur til Reykjavíkur. Vorum komin þangað um kl.16:00.
Engin ummæli enn