Fréttir og viðburðir

Aðalfundur FKE 2026

Aðalfundur FKE 2026

Laugardaginn 11. apríl klukkan 14:00 á Natura Hotel (Loftleiðum)

Nú styttist í síðustu samverustund vetrarins – og jafnframt aðalfund FKE – sem haldinn verður laugardaginn 11. apríl kl. 14:00 á Natura Hotel (Loftleiðum).  

Við byrjum á framsögu frá Pálma V. Jónssyni, öldrunarlækni, sem mun fjalla um hið mikilvæga og áhugaverða efni:„Að eldast vel“– erindi sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.  

Að því loknu hefjast hefðbundin aðalfundarstörf:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Ársreikningar félagsins
  3. Kosning stjórnar
  4. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga
  5. Lagabreytingar
  6. Önnur mál

Að dagskrá lokinni bjóðum við upp á notalegt kaffihlaðborð.

Verð: 2.500 kr.  Greitt við inngang eða inn á reikning félagsins: 0313-26-004211kt. 421190-1359

Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur góða og fróðlega stund.

Kær kveðja,Stjórnin

Leit