Fréttir og viðburðir

Af aðalfundi FKE

Af aðalfundi FKE

Helgi Árnason kosinn nýr formaður FKE á aðalfundi

Á aðalfundi Félags kennara á eftirlaunum sem haldinn var á hóteli Berjaya laugardaginn 11. apríl var Helgi Árnason fv. skólastjóri og kennari kjörinn formaður til eins árs með lófaklappi. Hann tekur við formennsku af Ragnari Jónassyni sem ekki gaf áfram kost á sér eftir farsælt starf sl. ár.

Aðrir í stjórn félagsins voru kjörin þau Sesselja Guðrún Sigurðardóttir, Björg Baldursdóttir, Kristín Þórisdóttir, Svava Bogadóttir auk tveggja nýrra stjórnarmanna sem eru þau Magnea Antonsdóttir og Jason Ívarsson.

Úr stjórn gengu þeir Skarphéðinn Guðmundsson og fráfarandi formaður Ragnar Jónasson. Þeir voru kvaddir með hlýjum orðum og myndarlegum blómvöndum.

Á aðalfundinum flutti Ragnar, fráfarandi formaður, ýtarlega skýrslu stjórnar þar sem fram kom m.a. að fjárhagsstaða félagsins væri góð, skemmtifundir yfirleitt vel sóttir og boðið var upp á áhugaverðar ferðir innanlands og erlendis. Gönguhópur félagsins bauð upp á vikulegar göngur yfir vetrartímann og félögum fjölgaði í EKKÓ kórnum sem æfir vikulega alla mánudaga í Áskirkju. Helgi Árnason gjaldkeri félagsins fylgdi eftir ársreikningi félagsins.

Eins og áður segir er fjárhagsstaðan góð og félagið nýtur árlegs rekstrarstyrks frá aðalstjórn KÍ. Skýrsla stjórnar og ársreikningur voru samþykkt einróma, engar lagabreytingar voru lagðar fram og fundi slitið. 

Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir

Áður en kom að aðalfundi hélt Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir erindið "Að eldast vel". Ákaflega áhugavert og lærdómsríkt erindi sem fundarmenn hlýddu á með athygli enda góð heilsa eitt það dýrmætasta sem við óskum okkur. Góð efri ár er tími sem við eldri kennarar viljum fá að njóta sem lengst. Meðalævi okkar Íslendinga er hin 6. hæsta í árum talið í heiminum og að sögn Pálma læknis getum við á margan hátt ráðið okkar heilsufari eftir fimmtugt. Holl hreyfing, reykleysi, hófdrykkja og að taka inn D vítamín eru atriði sem hafa góð áhrif á og líkamann. Það er aldrei of seint að byrja á að hreyfa sig  eða hætta að reykja. Í erindi sínu  brá Pálmi upp mörgum glærum á skjáinn sem voru skýrar, lærdómsríkar og gagnlegar. 

Í lok aðalfundar var boðið upp á glæsilegt kaffihlaðborð Berjaya sem fundargestir tóku vel á og gáfu sér tíma til að njóta þeirra og spjalla við félagana. Ný stjórn FKE mun koma saman til fyrsta fundar miðvikudaginn 22. apríl n.k. Þar mun ný stjórn skipta með sér verkum og leggja drög að starfi félagsins 2026 - 2027.   

Engin ummæli enn
Leit