Fréttir og viðburðir

Álandseyjar 20. - 24. September 2023

Álandseyjar 20. - 24. September 2023

26.09.2023 ferdir lidid 2023

Eyjaparadísin Álandseyjar heldur árlega hátíð („Skördefest“), þar sem bændur bjóða öllum heim til sín og sýna og selja sínar afurðir „beint frá býli“. Við heimsóttum eyjarnar og tókum þátt í hátíðinni, ferðuðumst milli bæja og fengum að upplifa stemmninguna á þessari einstöku hátíð. En við skoðuðum líka Álandseyjar og skerjagarðinn og fræddumst um heimastjórnina og hina merkilegu sögu sem eyjaklasinn hefur að geyma. Við fengum einnig heilmikinn fróðleik um list og menningu . Saga eyjanna rekur rætur sínar til steinaldar þegar skerin hófu að rísa úr sæ, en svo er sagan frá Víkingaöldinni og til dagsins í dag mjög áhugaverð. Náttúran skartaði sínu fegursta þar sem klettar og vogar voru alltaf í kring um okkur.

Við heimsóttum eyjuna „Föglö“ við siglingaleiðina austur til Finnlands. Það var margt innifalið í ferðinni, skoðunarferðir, máltíðir og drykkir. Ekki þurfti að taka upp veskið, nema til að kaupa minjagripi og fl.. Álandseyjar eru innan ESB svæðisins, en er fyrir utan skattasvæðis ESB og því er tollfrjáls varningur seldur um borð í ferjunni á milli Álandseyja og Svíþjóðar. Ferðin var skipulögð af Alandia Travel Service. Per Ekström er frá Álandseyjum og var fararstjóri. Hann talar góða íslensku. Konan hans, Kristbjörg Ásta Ingvarsdóttir, kennari á eftirlaunum, var einnig með í ferðinni. Ferðin varr í samstarfi við AX Tours AB og Ålands Turist & Konferens AB á Álandseyjum og eru þær ferðaskrifstofur með lögbundið ferðaskrifstofuleyfi og ábyrgðatryggingu. Alandia Travel Service er með lögbundið ferðaskriftstofuleyfi og tryggingar á Íslandi.

Engin ummæli enn
Leit