Fréttir og viðburðir

 Árlegur hátíðarfundur FKE

Árlegur hátíðarfundur FKE

Laugardaginn 7. mars kl. 13:30 á Reykjavík Natura

Við bjóðum ykkur velkomin á árlega hátíðarsamveru FKE sem haldin verður laugardaginn 7. mars kl. 13:30 á Reykjavík Natura, við austanverðan Reykjavíkurflugvöll (áður Hótel Loftleiðir).

Þetta er einstakt tækifæri til að hittast, njóta góðrar dagskrár og fagna samstöðu og gleði innan félagsins.

Dagskrá dagsins

  • Ekkó kórinn – okkar sívinsæli og líflegi kór stígur á svið og flytur nokkur lög undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar.
  • Fyrirlestur með Eddu Björgvinsdóttur – Edda fjallar á sinn einstaka hátt um það hvernig húmor og gleði eru mikil dauðans alvara í leik og starfi.
  • Kaffiveitingar og notalegt spjall – að lokinni dagskrá setjumst við saman við borðin, njótum veitinga og góðra samverustunda.

Verð og greiðslumöguleikar

Aðgangseyrir er 2.500 kr. Greitt er með reiðufé á staðnum eða með innborgun á:

  • Reikningur: 0313-26-004211
  • Kennitala: 421190-1359

Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga með ykkur gleðilega og uppbyggilega samveru.

Leit