Fréttir og viðburðir
Látinn er í Reykjavík, eftir stutt veikindi, fyrrum formaður okkar til sex ára, Emil Ragnar Hjartarson.
Auk þess að vera virkur FKE félagi í tvo áratugi var hann leiðandi söngfélagi í EKKÓ kórnum þar sem falleg tenórrödd naut sín vel. Emil var afar skemmtilegur félagi, hár og spengilegur enda íþróttamaður allt frá æskuárum. Emil Ragnar lét gott heita með kórnum í byrjun þessa árs þar sem veikindi voru byrjuð að herja á hann. Við félagar kórsins söknuðum hans og bárum þá von í brjósti að hann næði að snúa til baka.
Það var mikill styrkur fyrir mig að hafa Emil Ragnar við hlið sér þegar ég byrjaði í EKKÓ kórnum sl. haust og með okkur tókst strax góður vinskapur.
Emil átti langan og farsælan feril að baki sem kennari og skólastjóri, alls 45 samfelld ár líkt og fram kom í afmælisgrein Morgunblaðsins á 90 ára afmælisdegi hans 23. apríl sl.
Eiginkona Emils er Anna Jóhannsdóttir sem við kórfélagar þekkjum vel enda hefur Anna sungið með kórnum líkt og Emil.
Fyrir hönd stjórnar FKE og EKKÓ kórsins vil ég þakka Emil Ragnari gjöfult og ánægjulegt samstarf um leið og við sendum Önnu og eftirlifandi dætrum þeirra innilegar samúðarkveðjur.
Helgi Árnason - Formaður FKE

