Fréttir og viðburðir

 Fljótshlíð 15.júní 2026

Fljótshlíð 15.júní 2026

Góð dagsferð í Fljótshlíðina fögru er að baki

Góð stemning og ánægja ríkti í hópnum. Fyrst voru dularfullu hellarnir við Hellu á jörðinni Ægisíðu skoðaðir. Þeir eru með þekktustu manngerðu hellum á Íslandi. Þar fengum við fróðlega og skemmtilega leiðsögn.

Þá tók Ísólfur Gylfi Pálmason við leiðsögninni, fræddi okkur um sveitina og sérstaklega um sinn heimabæ Hvolsvöll. Fór hann með okkur í hrossaræktarbúið Hjarðartún, þar sem hross eru ræktuð og tamin. Við fengum að skoða gæðingana og góðan aðbúnað þeirra. Hádegisverður á Hellishólum í Fljótshlíð rann ljúflega niður.

Síðast en ekki síst buðu Ísólfur Gylfi og kona hans Steinunn okkur að Uppsölum, þar sem þau búa. Þar þáðum við kaffi og sungum saman við undirleik Ísólfs Gylfa. Samveran fór fram í fjósinu þar sem þau hjón hafa komið sér upp heilum ævintýraheimi. Það var ánægður hópur sem lagði af stað heim í lok dags.

Leit