Fréttir og viðburðir

Flórens 2026

Flórens 2026

Fyrsta ferð FKE 2026 til Flórens gekk í alla staði mjög vel og allir ferðafélagar mjög ánægðir með ferðina.

Dagarnir voru notaðir til að fræðast og sjá merkilega og fallega staði eins og Dómkirkjuna í Flórens. Þeir hugrökkustu fóru upp í turn kirkjunnar, 460 þrep.

Farið var í listasafnið Galleria Del Academia þar sem við skoðuðum m.a. höggmynd af Davíð eftir Michelangelo auk annarra listaverka. Góð leiðsögn staðaarleiðsögumanns og Þórhalls gerði þetta allt áhugaverðara.

Ýmsir smáhópar sóttu svo ýmsar listasýningar á eigin vegum, þar er af nógu að taka í Flórens. Frjáls tími nýttist líka til að upplifa töfra borgarinnar.

Farið var í miðaldarbæinn San Gimignano sem er á heimsminjaskrá Unesco, áhugaverður og skemmtiegur staður í Toskana-héraði. Í sömu ferð fórum við í vínbúgarð, fengum fræðslu og smökkuðum á úrvals vínum með girnilegum hádegismat.

Hópurinn virtist ná vel saman í spjalli og gleði eins og kennurum er einum lagið . Þetta er nú bara smá upptalning af öllum upplifunum í þessari frábæru ferð.

Leit