Fréttir og viðburðir

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar FKE

Fyrsti fundur nýrrar stjórnar FKE

Myndin sem fylgir þessari frétt er af nýrri stjórn FKE 2026 - 2027: f.v. Magnea Antonsdóttir, Jason Ívarsson, Sesselja Guðrún Sigurðardóttir, Helgi Árnason formaður, Kristín Þórisdóttir, Svava Bogadóttir og Björg Baldursdóttir.

Nýkjörin stjórn Félags kennara á eftirlaunum kom saman til fyrsta stjórnarfundar miðvikudaginn 22. apríl. Helgi Árnason, nýkjörinn formaður félagsins stýrði fundinum. Stjórnin skipti með sér verkum. Sesselja Guðrún Sigurðardóttir var kjörin ritari og varaformaður FKE, Svava Bogadóttir gjaldkeri og þær Björg Baldursdóttir, Kristín Þórisdóttir og Magnea Antonsdóttir skipa ferðaráð. Jason Ívarsson er meðstjórnandi. Á starfsárinu verður efnt til ferðalaga innanlands og utan. Ferðir 2026 eru þegar skipulagðar og bókaðar. Ferðaráðið mun nú þegar hefja að skipuleggja ferðalög félagsins 2027. Áfram verður efnt til mánaðarlegra skemmtifunda yfir vetrartímann með áhugaverðum fyrirlestrum, félagsvist, söng-og skemmtiatriðum að ógleymdu hagstæðu kaffihlaðborði. 

 Félagið heldur úti gönguhóp og EKKÓ kórnum sem heldur vikulegar æfingar á mánudögum. Kórinn gleður félagsmenn með söng auk þess að syngja við messur og á viðburðum sem tilheyra jólunum. 

Stjórn FKE vekur athygli félagsmanna á að fylgjast vel með heimasíðu FKE og Facebook síðu.   

Engin ummæli enn
Leit