Fréttir og viðburðir

Gleði og samvera á fjölmennum hátíðarfundi FKE

Gleði og samvera á fjölmennum hátíðarfundi FKE

Laugardaginn 7. mars sl. komu félagsmenn FKE saman á Natura Hotel til árlegs hátíðarfundar. Það var sannkölluð gleði í loftinu og dagskráin sveik engan, en fundurinn einkenndist af fallegum söng og dýrmætri lífsspeki.

Söngur, hvatning og húmor

Fundurinn hófst á dásamlegum nótum þegar Ekkó kórinn tók lagið. Söngur þeirra setti tóninn fyrir daginn og fyllti salinn af þeim einstaka lífskrafti sem fylgir kórstarfinu.

Heiðursgestur fundarins var engin önnur en Edda Björgvinsdóttir, sem eins og henni einni er lagið, náði að hrífa alla viðstadda með sér. Hún flutti hvetjandi erindi þar sem hún lagði áherslu á mikilvægi þess að rækta gleðina og þakklætið á lífsgöngunni. Edda minnti okkur á að viðhorf okkar er það veganesti sem mestu máli skiptir þegar við horfum til framtíðar.

Jákvæð inngrip í hversdaginn

Það var sérstaklega gaman að sjá hve margir mættu, en um 90 manns mættu og nutu samverunnar. Eftir formlega dagskrá gæddu gestir sér á glæsilegum veitingum, og spjallið og hláturinn fengu að njóta sín.

Fyrir þau sem vilja rifja upp viskuna frá Eddu eða spreyta sig á æfingunum sem hún mælti með, þá höfum við fengið góðfúslegt leyfi til að deila glærunum hennar hér á síðunni. Þar má finna hagnýt „jákvæð inngrip“ sem gott er að grípa í til að hressa upp á sálartetrið.

Glærur fyrirlestrarins

Fyrirlestrarpunktar

Leit