Fréttir og viðburðir

Grandfundur 04. nóvember 2023
25.10.2023 Grandfundir 2023 liðið Fundur
Grandfundur var haldinn 4. nóvember 2023 Hófst hann á félagsvist eins og oftast. Spilað var á 6 borðum og voru vinningshafar Arndís Björnsdóttir og Kristinn Breiðfjörð.
Þegar félagsvistinni lauk var tónlistaratriði, Marianna Arney Ívarsdóttir 15 ára nemandi í Hagaskóla og jafnframt nemandi í Menntaskólanum í tónlist og fiðlukennari hennar Geirþrúður Ása Guðjónsdóttir léku saman á fiðlur við mikinn fögnuð gesta.
Eftir ljúfa tóna var kaffi og meðlæti gerð góð skil. Gestir voru tæplega 40 að þessu sinni.
