Fréttir og viðburðir

Hvert sæti skipað á fyrsta skemmtifundi FKE í vetur
Fyrsti skemmtifundur Félags kennara á eftirlaunum var haldinn í Lindakirkju laugardaginn 3. október. Ánægjulegt hversu fjölmennt var á fundinum og það fór vel um alla gesti í rúmgóðum og vistlegum safnaðarsal Lindakirkju.
Félagið fékk frábæran fyrirlesara til okkar á fundinn, Jónatan Garðarsson fjölmiðlamann og fræðimann um íslenska tónlist. Jónatan fór yfir íslenska tónlistarsögu, með áherslu á 20. og 21. öldina. Afskaplega áhugavert efni sem flest okkar þekkja meira og minna. Með erindinu varpaði Jónatan upp á skjá fjölda mynda af söngvörum og hljóðfæraleikurum, andlit sem hafa fylgt okkur í söng og spili.

Eftir erindi Jónatans var boðið upp á kaffi og veisluhlaðborð að hætti félagsins og mikið spjallað yfir góðum veitingunum. Jason Ívarsson stjórnarmaður í FKE átti svo síðasta dagskrárliðinn á fundinum. Hann þuldi ótal skemmtisögur, úr kennslustofunni og skrautlegu mannlífi viðs vegar um landið.
Næsti skemmtifundur FKE verður laugardaginn 7. nóvember í Lindakirkju. Nánar auglýst síðar.
