Fréttir og viðburðir
Haustferðin okkar til Stokkhólms heppnaðist í alla staði mjög vel. Ferðafélagar komu alsælir heim eftir fimm daga dvöl í Stokkhólmi. Við dvöldum á hótelinu Sheraton miðsvæðis í borginni. Þar var þjónusta, matur og allur aðbúnaður hinn besti.
Fararstjóri ferðarinnar var Þórhallur Heimisson. Hann var einstakur, nálgaðist viðfangsefnið af einstakri alúð , húmor og gleði, eins og einn ferðafélagi orðaði það.
Dagskrá var fyrri hluta dags, svo var góður frjáls tími til hvíldar eða til að njóta þessa að arka meira um götur og torg.
Fyrsta daginn var farið í skoðunarferð um borgina. Þar fengum við góða yfirsýn yfir borgina. Útsýnisstopp við Erst sjukhus, Södermalm. Þar gátum við virt fyrir okkur alla dýrðina. Einnig var stoppað við Ráðhúsið og svo gengið í gegnum Kungsträdgården heim.
Smelltu á stóru myndina til að opna myndasafnið í heilskjárham.
Annan daginn var farið í dýrðlega siglingu um skerjagarðinn. Þar nutum við útsýnisins í fallegu og björtu veðri. Þegar komið var í land fórum við í góðan göngutúr um Gamla Stan, sem hrífur alla.
Síðasta daginn fórum við í Vasa safnið og nutum fróðlegrar leiðsagnar Þórhalls um þetta merka safn. Mjög áhugavert að skoða sögu þessa skammlífa skips, sem lifnar við fyrir sjónum gesta.
Endað var í Abba-safninu þar sem hópurinn naut sín og fór frjáls ferða sinna. Þarna voru skrautlegir búningar hljómsveitarinnar , gull plötur , persónulegir munir o.fl. sem minnti á þeirra tíma. Gagnvirk svið og hljóðver, svo hægt var að syngja og dansa með. Ég held að enginn úr okkar hópi hafi þó stigið á svið .
Hópurinn náði góðum tengslum og kom ánægður heim eftir fimm daga ferð, um þessa fallegu borg.
F.h. Ferðaráðs Magnea Antonsdóttir

