Fréttir og viðburðir

 Velheppnuð ferð að Fjallabaki – að baki

Velheppnuð ferð að Fjallabaki – að baki

Ævintýraferð kennara á eftirlaunum um Fjallabaksleið syðri heppnaðist á allan hátt vel og rúmlega það. Öllu skipti þar að veðrið lék við okkur allan daginn, þessar 15 klukkustundir sem ferðin tók, náttúrufegurðin einstök og hópurinn okkar samstæður og skemmtilegur.

Ferðaþjónustan Midgard Adventure á Hvolsvelli sá um skipulag ferðarinnar. Vant fólk sem þekkir töfra þessara öræfa afskaplega vel.

Hópurinn ferðaðist með vel útbúinni fjallarútu, sem var með svo góðum fjöðrum að hún sveiflaðist vegakantanna á milli þegar djúpar holur, hallandi og örmjóir vegir létu finna fyrir sér.

Frá Hvolsvelli var ekið inn Fljótshlíð upp á hálendið. Jöklarnir og Þórsmörkin blöstu við til hægri en þegar hærra var komið upp á hálendið tók við útsýni yfir einstök fjöll og tinda, Einhyrning, Hattfell og Mælifell, svo einhver þessara tignu fjalla séu nefnd.

Ferðafélögum var boðið að ganga meðfram brúnum Markafljótsgljúfra þar sem hrikaleg og stórfengleg sköpun náttúrunnar heillar og Markarfljótið tilkomumikið rennur eftir djúpu gljúfrinu.

Lengsta stoppið var við skála Ferðafélagsins í Hvanngili þar sem leiðsögumenn Midgard grilluðu pylsur ofan í hópinn, og buðu upp á appelsín og sætindi frá Góu.

Rútan silaðist með okkur fram og til baka þessa fallegu leið, hægt en örugglega.

Komið var kl. 19:30 á Hvolsvöll. Þar beið okkar hagstæður kvöldverður, lambaskanki og eftirréttur. Midgard toppaði loks okkar ánægjulegu ferð með því að bjóða hópnum upp á hljómleika með húsbandinu. Þrír hljómsveitarmeðlimir spiluðu kunn dægurlög og við ferðalangar tókum vel undir sönginn.

Allir sem komu að skipulagi þessarar Fjallabaksferðar eiga hrós og heiður skilið. Hlökkum til næstu ferðar.

Helgi Árnason formaður FKE

Leit