Fréttir og viðburðir

 Vorferð EKKÓ - kórsins til Hafnarfjarðar

Vorferð EKKÓ - kórsins til Hafnarfjarðar

21.05.2026 Ekkó ekko maí 2026

Okkar dásamlegi kór lauk söngárinu með áhugaverðri vorferð til Hafnarfjarðar. Jónatan Garðarsson, innfæddur Gaflari, leiddi kórfélaga um götur bæjarins og fræddi okkur um sögu kaupstaðarins, húsin í bænum og fólkið sem byggði bæinn. Þetta var einhver lengsti göngutúr sem menn muna því hann hófst kl. 12:00 og lauk kl. 18:00. En dýrðarinnar veður gerði þessa fróðlegu gönguferð ógleymanlega. Vinum bæjarins fjölgaði.

Kórinn söng fyrir Karmelsystur í kapellu klaustursins og luku þær systur okkur kórfélögum lofsyrðum fyrir komuna og sönginn. Kórfélagar skoðuðu Minjasafn Hafnarfjarðar í gamla Pakkhúsinu. Húsið stóð við fjöruborðið áður en uppfyllingar hófust meðfram sjónum en er nú komið vel inn á land.  

Starfsár EKKÓ kórsins hefur verið ákaflega heillandi. Vikulegar æfingar alla mánudaga í Áskirkju kl. 11:00 - 12:45. Skemmtileg lög og stjórnandinn Bjartur Logi léttur en skipulagður. Kórinn hefur komið fram á félagsfundum FKE, sungið við messur í Áskirkju og jólalögin á dvalarheimilum. Rúmlega 40 félagar hófu æfingar í haust sem er góður fjöldi. En alltaf er þörf á endurnýjun og fleiri félögum. Eftirlaunakennarar eldast og láta gott heita og menn veikjast í lengri eða skemmri tíma. Kennarar á eftirlaunum eru heldur ekki eftirbátar annarra ellismella við að sækja til Tenerife og Kanarí yfir skammdegistímann. Æfingar EKKÓ kórsins hefjast að nýju í haust og eru söngelskir kennarar á eftirlaunum hvattir til að slást í hópinn og njóta gleðinnar í söng og starfi.

Gleðilegt sumar.

Leit