Gönguferð um Alsace
7. - 14. júní 2027
Ævintýri, upplifun og slökun fara hönd í hönd í þessari gönguferð.
Verð: 350 þúsund krónur á mann
Erfiðleikastuðull gönguferða: Miðlungs
Komdu með í ógleymanlega ferð um eitt mest heillandi hérað Evrópu.
Alsace er hérað í austurhluta Frakklands nálægt landamærum Þýskalands. Það er þekkt fyrir einstaka blöndu af franskri og þýskri menningu, ríkulega matargerð, framúrskarandi hvítvín og fallegar miðaldaborgir. Gist verður í einu af fallegustu þorpum Alsace, Riquewhir sem er staðsett í hjarta vínhéraðsins á milli Vosgesfjalla og Rínardalsins.
Við munum ganga um vínakra á milli fallegra miðaldaþorpa, upp í hlíðar ofan við vínræktarsvæðin, koma við hjá vínbændum og smakka framleiðsluna auk þess sem við heimsækjum borgirnar Colmar og Strassbourg.
Komdu með í ógleymanlega ferð um eitt mest heillandi hérað Evrópu.
Í þessari vönduðu vikuferð dveljum við í 7 nætur á hinu glæsilega Best Western Plus Hotel & Spa í miðaldabænum Riquewihr. Þaðan leggjum við upp í fjölbreyttar og þægilegar göngur um sólríkar vínekrur, skógarhlíðar Vosges-fjallanna og ævintýraleg smáþorp á borð við Ribeauvillé og Kaysersberg. Ferðin sameinar hreyfingu, sögu og skemtilegann félagsskap:
- Vínsmakk og heimsóknir: Við lítum inn hjá staðbundnum vínbændum og heimsækjum hið rómaða vínframleiðsluhús Dopff Au Moulin.
- Menning og saga: Við heimsækjum lifandi útisafnið Écomusée d’Alsace, dáumst að skurðunum í „Litlu Feneyjum“ í Colmar og njótum siglingar um skurði og síki í höfuðborginni Strasbourg.
- Slökun: Góður tími gefst til að njóta frábærs matar, spa-aðstöðu hótelsins og einstakrar stemningar í hjarta vínleiðarinnar.
- Snorri Guðmundsson
- Inga Geirsdóttir
Dagskrá ferðarinnar
Mánudagur 7. júní: Flug til Zurich og akstur til Alsace
Flug FI568 með Icelandair kl. 07:20 og lent í Zurich kl. 13:05.
Ekið rúmlega 2 klst. til Riquewihr, en þar er gist í 7 nætur á Best Western Plus Hotel & Spa Riquewihr.
Þriðjudagur 8. júní: Hringleið til Ribeuville
Kl. 10:00 er lagt af stað í göngu dagsins.
Gengin hringleið frá hótelinu um vínekrur í gegnum Hunawihr á leið okkar til Ribeuville sem er eitt af þessum gullfallegu miðaldarþorpum í Alsace. Gamli miðbærinn er einstaklega vel varðveittur með sínum litríku timburhúsum. Á aðalgötunni Grand‘Rue er að finna fjölmargar verslanir, kaffihús og vínbúðir. Þar verður boðið upp á hádegisverð. Frjáls tími í Ribeuville og síðan gengið til baka á hótelið okkar.
Ganga 12 km - Hækkun / lækkun 228m
Miðvikudagur 9. júní: Keysersberg - Turkheim
Kl. 09:00 er ekið að upphafsstað göngu í Keysersberg.
Gengið er í skógarhlíðum og á vínekrum milli fjögurra þorpa. Í einu þeirra (Katzental) bönkum við uppi hjá vínbónda sem fræðir okkur um framleiðsluna og gefur okkur að smakka á hinum ýmsu vínum. Gangan endar í Turkheim sem er lítill bær í hjarta Alsace vínslóðarinnar. Þar verður gefinn frjáls tími til að skoða sig um og snæða hádegisverð áður en við ökum til baka á hótelið okkar.
Ganga: 11 km - hækkun 109 m lækkun 214 m
Fimmtudagur 10. júní: Colmar
Kl. 10:00 er ekið til Colmar (30 mín), sem er ein fallegasta borg heims, oft lýst sem sprottin úr ævintýri. Hún er rómuð fyrir vel varðveittan miðaldabæ sem slapp að mestu óskaddaður frá heimstyrjöldunum tveimur. Þar er að finna timburhús frá 14-17 öld, falleg torg, litlar verslanir og veitingahús. Frægasti hluti borgarinnar er Petite Venise (Litlu Feneyjar) með snotrum húsaröðum í pastellitum og litlar ár og síki sem hægt er að sigla um á bátum.
Eftir stutta gönguferð í miðbænum tekur við frjáls tími til að snæða hádegisverð og skoða sig um og njóta alls þess sem þessi einstaka borg hefur uppá að bjóða. Kl. 15:00 er ekið til baka á hótelið. Kl. 17:00 er heimsókn til Dopff Au Moulin, en þar verður vínkynning og að sjálfsögðu vínsmakk.
Föstudagur 11. júní: Ribeuville – Notre-Dame de Dusenbach
Kl. 09:00 er ekið til Ribeauville þar sem ganga dagsins hefst. Við göngum til Notre-Dame de Dusenbach, sem er sögufræg kirkja og pílagrímastaður í Vosges fjöllunum ofan við bæinn.
Eftir að hafa skoðað okkur um höldum við til baka til Ribeaueville. Þar verður frjáls tími til að skoða sig um í bænum
Að því loknu verður ekið til Écomusée d'Alsace sem er mjög skemmtilegt útisafn og í raun heil endurgerð sveitabyggð. Safnið er líka „lifandi“. Þar má sjá handverksfólk að störfum, meðal annars við leirkeragerð og járnsmíði, auk húsdýra, garða og ræktunar. Daglega eru ýmsar sýningar og athafnir, og hægt er að fara í báts- eða dráttarvélaferðir. Frjáls tími þar til að snæða hádegisverð og skoða sig um
Síðan er ekið til baka á hótelið okkar.
Laugardagur 12. júní: Keysersberg
Gengið í skógarjaðri og gegnum vínekrur til Keysersberg, sem er eitt af þessum frægu Alsace þorpum með vel varðveittum og fagurlega skreyttum timburhúsum. Þar ætlum við að skoða okkur um.
Boðið upp á hádegisverð í Keysersberg.
Göngum síðan til baka á hótelið okkar.
Ganga 13 km. Hækkun / lækkun 364 m.
Sunnudagur 13. júní: Strasbourg
Kl. 08:30 er ekið norður til Strasbourg (1 klst), höfuðborgar Alsace. Við byrjum á að fara í siglingu á ánni Ill sem rennur í gegnum miðborgina. Síðan tekur við frjáls tími til að skoða sig um í borginni.
Borgin hefur að geyma eina frægustu gotnesku dómkirkju í Evrópu sem lengi var hæsta bygging heims með sínum gríðarháa turni. Miðbærinn er sögufrægur og mjög fallegur, með þröngum götum, síkjum og tréhúsaarkitektúr.
Borgin er oft kölluð ein af höfuðborgum Evrópu, því þar eru staðsettar mikilvægar stofnanir svo sem Evrópuþingið, Mannréttindadómstóll Evrópu og Evrópuráðið.
Kl. 16:00 er ekið til baka á hótelið okkar.
Mánudagur 14. júní: Heimferð
Kl. 08:00 er ekið til Zurich flugvallar.
Flug FI569 kl. 14:00. Lending í Keflavík kl. 16:00
