Dagsferð í Þakgil
Brottför frá Salaskóla & Hvolsvöllur
Ferðin hefst með brottför frá Salaskóla í Kópavogi kl. 08:00. Ekið er sem leið liggur austur á Hvolsvöll, þar sem verður fyrsti áningarstaður ferðarinnar.
Höfðabrekka og Stórhellir
Höfðabrekka er austasti bær vestan Mýrdalssands. Á leiðinni inn á Höfðabrekkuheiði verður stoppað í Stórhelli og farið yfir sögu svæðisins. Allir geta auðveldlega gengið að hellinum.
Koma í Þakgil – Grillað og notið
Komið er inn í Þakgil og leiðsögumennirnir hefjast handa við að grilla. Hægt er að skoða náttúruperlur í kring á meðan maturinn er undirbúinn.
Snætt verður í einum hellinum í Þakgili, þar sem hægt er að koma öllum hópnum fyrir í sætum.
Ganga í Remundargil
Farið er með rútu að minni Remundargils, þar sem gengið er inn að fossinum í Remundargili með leiðsögn. Allflestir ættu að komast alveg inn að fossi, þar sem leiðin er á flatlendi.
Líkur eru á að ekki þurfi að stikla yfir ána, en ef mikið er í ánni verður dagskráin endurskoðuð. Allir ættu að geta komist svo langt að sjá fossinn. Gangan tekur um 1 til 1½ klukkustund.
Heimferð & kvöldverður á Midgard Restaurant
Lagt er af stað til baka úr Þakgili kl. 17:00.
🚌 Um kl. 21:00: Lagt af stað heim á leið.
🏠 Um kl. 23:00: Áætluð heimkoma í Kópavog.
